Pizzudeig
5 dl hveiti (eða 4.5 dl af venjulegu hveiti og 0.5 dl af durum hveiti)
1 tsk salt
3 tsk þurrger
2 dl volgt vatn
2 msk olía
Öllu hrært saman í smá stund og svo hnoðað.
Deginu skipt í tvennt og sett á plastbretti.
Plastfilma sett yfir og látið hefast í minnst hálftíma.
Best að baka neðst í ofninum við 250°c í ca. 5 mín.
Pizzusósa
1 dós hakkaðir tómatar
1 dós tómatpúrra
slatti af oregano
salt og pipar eftir smekk
má setja smá sykur