Pestó


Hnefafylli af ferskum basilíkumblöðum (henda stilknum)
3-4 msk nýrifinn Parmesan-ostur
3-4 msk furuhnetur
1-2 hvítlauksrif
1 msk ólífuolía
Pínu salt og pipar

Allt nema olían sett í blandara (sérfræðingarnir nota þó mortél), stillt á millihraða og olíunni hellt hægt útí. Hrært þangað til sósan er slétt og jöfn.