Frönsk Súkkulaðikaka
Botn:
4 egg
2 dl sykur
200 gr smjör/smjörlíki
200 gr suðusúkkulaði
1 dl hveiti
1 tsk vanillusykur
Egg og sykur þeytt saman.
Smjör og súkkulaði brætt saman og hrært saman við eggin og sykurinn.
Hveiti og vanillusykri blandað rólega saman við.
Bakað í 20-25 mín við 175°C í tveimur 24-26cm formum eða einu stærra.
Krem:
70 gr smjör/smjörlíki
150 gr. suðusúkkulaði
2 msk. síróp
Allt brætt saman í potti og svo sett á kökurnar.